Íslenska ríkið þarf að greiða Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, misabætur vegna ólögmætra hlerana og óréttlátrar málsmeðferðar að því er mbl.is greinir frá .

Þetta var niðurstaðan í einkamáli sem Hreiðar Már hafði höfðar gegn ríkinu. Hreiðar hafði farið fram á að honum yrðu greiddar 10 milljónir í bætur en ríkinu var þó aðeins gert að greiða honum 300 þúsund krónur, auk vaxta frá 1. desember 2016.

Fimm sakamál vöru hföðuð á hendur Hreiðari Má með ákæru á grundvelli rannsókna sérstaks saksóknara. Tveimur þessara mála er lokið með sakfellingu fyrir Hæstarétti, eitt var ógilt og vísað aftur í hérað, eitt bíður meðferðar fyrir Landsrétti og eitt er til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur samkvæmt embætti héraðssaksóknara.

Sérstökum saksóknara var fjórum sinnum veittir símhlustunarúrskurðir, frá mars til maí 2010, við rannsókn málanna.