Stjórn Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins veitti í dag, á 83 ára afmælisdegi Ríkisútvarpsins, Guðmundi Andra Thorssyni viðurkenningu sjóðsins, ásamt framlagi að upphæð 500 þúsund krónum.

Í tilkynningu frá RÚV kemur fram að formaður stjórnarinnar er Bergljót S. Kristjánsdóttir, en fyrst var úthlutað úr sjóðnum árið 1956.