Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,33% í dag en viðskipti á hlutabréfamarkaði námu tæplega 0,8 milljörðum króna. Aðalvísitala skuldabréfa hækkaði um 0,03% og stendur því í 1.363,31 stigi, en viðskipti með skuldabréf námu tæplega 3,2 milljörðum króna.

HB Grandi og Fjarskipti hf. hækkuðu mest eða um 0,90% og 0,77% en í óverulegum viðskiptum. Þá hækkaði Síminn um 0,47% í 120 milljón króna viðskiptum en bréf Símans stóðu í 4,27 krónum við lok dags.

Mest lækkun var á bréfum Skeljungs en þau lækkuðu um 1,34 % í 64 milljón króna viðskiptum og stóðu í 6,61 krónu við lokun markaða.

Mest voru viðsipti með bréf Icelandair en þau tæpum 167 milljónum króna. Félagið lækkaði um 1,23% sem var jafnframt næst mesta lækkun dagsins en bréf félagsins standa nú í 14,42 krónum.

Vísitölur Gamma

Hlutabréfavísitala Gamma lækkaði um 0,24% í dag í 770 milljón króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala Gamma hækkaði um 0,03%  í 1,9 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,05% í tæplega milljarðs viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,01% í tæplega milljarðs viðskiptum.