Úrvalsvísitala Kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði 0,01% og stendur nú í 1.786,32 stig. Heildarvelta á mörkuðum nam 5 milljörðum þar af var veltan á hlutabréfamarkaði 1,7 milljörðum og 3,3 milljörðum á skuldabréfamarkaði.

Gengi bréfa Skeljungs lækkaði mest eða um 1,82% í 46,6 milljón króna viðskiptum. Hækkaði gengi bréfa Nýherja um 1,23% í 19,4 milljón króna viðskiptum og einnig hækkaði gengi bréfa VÍS um tæp 1 prósent í 187 milljón króna viðskiptum.

Vísitölur GAMMA

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði lítillega í dag í 4,9 milljarða viðskiptum. Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,1% í dag í 1,7 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði lítillega í dag í 3,2 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 1,3 ma. viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 1,9 ma. viðskiptum.