Ákveðið hefur verið að Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður forsætisráðherra, muni fyrst um sinn jafnframt gegna embætti aðstoðarmanns dómsmálaráðherra og hafa aðstöðu í innanríkisráðuneytinu frá og með deginum í dag, 1. september. Eins og áður hefur verið greint frá munu dómsmál færast tímabundið undir Sigmund Davíðs Gunnlaugsson forsætisráðherra í kjölfar þess að Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra baðst undan þeim í kjölfar lekamálsins.

Á sama tíma hefur Lilja D. Alfreðsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri á skrifstofu bankastjóra og alþjóðasamskipta í Seðlabankanum, verið ráðin tímabundið sem verkefnisstjóri í forsætisráðuneytinu.

Fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu að Lilja kemur til starfa á grundvelli tímabundins vistaskiptasamnings við Seðlabankann og verður Lilja í leyfi frá bankanum á meðan samningurinn varir. Í tilkynningunni segir að Lilja hefur unnið í Seðlabanka Íslands frá árinu 2001 og starfað sem aðstoðarframkvæmdastjóri frá 2005. Einnig starfaði hún hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í Washington DC frá 2010-2012. Lilja D. Alfreðsdóttir er með meistaragráðu frá Columbia University í alþjóðahagfræði og BA gráðu stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.