Í yfirlýsingu frá Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar segir að stjórn félagsins telji mikilvæga þá ákvörðun Ríkisendurskoðunar að ráðast í úttekt á starfsemi félagsins, eins og stjórn Þróunarfélagsins óskaði eftir fyrr á þessu ári.

Stjórn Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar segist þess fullviss að úttekt Ríkisendurskoðunar leiði í ljós að við sölu fasteigna á Keflavíkurflugvelli hafi í öllu verið farið eftir lögum um Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar. Ennfremur að unnið hafi verið samkvæmt þeim skilyrðum og fyrirmælum sem félaginu voru sett.

Tilgangurinn með stofnun Þróunarfélagsins var meðal annars að koma fasteignum í eigu ríkisins á Keflavíkurflugvelli sem fyrst í arðbær borgaraleg not með það að markmiði að jákvæð samfélagsleg áhrif verði sem mest og neikvæðum áhrifum á nærsamfélagið verði haldið í lágmarki.

Í þjónustusamningi Þróunarfélagsins við ríkið er kveðið á um markmið, umboð og heimildir Þróunarfélagsins. Frá stofnun félagsins, 24. október 2006, hefur félagið starfað faglega samkvæmt þjónustusamningnum.

Þróunarfélagið hefur frá upphafi kallað eftir áhugasömum aðilum með hugmyndir um nýtingu eigna á svæðinu, meðal annars með áberandi auglýsingum með vísun í upplýsandi vef félagsins, þar sem allar óseldar eignir ríkisins á svæðinu eru kynntar og söluskilmálar tíundaðir, eins og segir í yfirlýsingunni.