Í ljós hefur komið að rakaskemmdir í hluta af höfuðstöðvum OR við Bæjarháls séu meiri en búist var við. Því þarf að rýma vesturhluta hússins meðan nauðsynlegar viðgerðir eru framkvæmdar. Þær verða boðnar út á næstunni.

Haustið 2015 varð rakaskemmda vart í vesturhúsi höfuðstöðva OR. „Var þá þegar hafinn undirbúningur viðgerða sem hófust um mitt síðasta ár. Í vinnunni síðan hefur komið í ljós að verkið er umfangsmeira en vonast var til og að það vinnst of hægt meðan starfsemi er enn í húsinu. Því hefur verið ákveðið að rýma allt vesturhúsið við Bæjarháls til að úrbætur taki skemmri tíma. Umfangið er þó slíkt að ekki er gert ráð fyrir að þeim ljúki fyrr en í árslok 2018,“ segir í frétt á vefsíðu OR.

Starfsmönnum OR, Orku náttúrunnar og Veitna verður fundið rými í öðrum hlutum núverandi höfuðstöðva, en Gagnaveita Reykjavíkur og þrjú önnur fyrirtæki sem leigt hafa aðstöðu af OR þurfa að flytja út á framkvæmdatímanum.

„Nú þegar hefur kostnaður við viðgerðir og aðrar ráðstafanir vegna skemmdanna numið um 200 milljónum króna. Hver endanlegur kostnaður verður ræðst meðal annars af niðurstöðu fyrirhugaðs útboðs,“ segir að lokum í fréttinni.