Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, kom í morgun á framfæri mótmælum íslenskra stjórnvalda við tilskipun Bandaríkjaforseta um bann við komu flóttafólks og borgara sjö ríkja til Bandaríkjanna á fundi með Benjamin Ziff, aðstoðarráðherra í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna, sem staddur er hér á landi. Gerði ráðherra meðal annars grein fyrir þeim afleiðingum sem bannið hefði hérlendis á íslenska ríkisborgara með tvöfalt ríkisfang sem eiga uppruna sinn að rekja til þeirra ríkja sem bannið nær til, segir í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu.

„Bandaríkin hafa ætíð, og framar flestum öðrum, tekið opnum örmum á móti innflytjendum sem hafa mótað samfélagsgerðina þar í landi með mjög jákvæðum og afgerandi hætti. Tilskipun Bandaríkjaforseta er því mjög fjarri því sem við höfum átt að venjast frá Bandaríkjunum, og þeim gildum sem við eigum sameiginleg. Í því felast mikil vonbrigði og því var mikilvægt að koma skilaboðum á framfæri með skýrum hætti og milliliðalaust. Sá er vinur er til vamms segir," segir Guðlaugur Þór við tilefnið.

Guðlaugur Þór mótmælti enn fremur tilskipun Bandaríkjaforseta um að ekki mega veita fé til samtaka eða stofnana sem veita upplýsingar um fóstureyðingar eða veita aðgang að öruggum fóstureyðingum erlendis.

„Aðgengi að öruggum fóstureyðingum er mikilvægt mannréttinda- og heilbrigðismál og því veldur sú tilskipun Bandaríkjaforseta sömuleiðis miklum vonbrigðum," segir Guðlaugur Þór.