Samtök atvinnulífsins hafa höfðað mál fyrir Félagsdómi gegn Eflingu stéttarfélagi og krafist að boðað verkfall 8. mars nk. verði dæmt ólögmætt. Þess er einnig krafist að Efling verði dæmt til greiðslu sektar í ríkissjóð vegna brota á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Greint er frá þessu á vef SA .

SA telja atkvæðagreiðslu Eflingar hafa verið andstæða lögum enda verði vinnustöðvun, sem einungis sé ætlað að ná til ákveðins hóps félagsmanna, einungis borin undir þá félagsmenn sem vinnustöðvun er ætlað að taka til. Einnig er vísað til þess að atkvæðagreiðsla Eflingar hafi ekki verið póstatkvæðagreiðsla í skilningi laga enda var atkvæða að mestu aflað með kjörfundum fyrir utan einstaka vinnustaði. Þegar atkvæði eru greidd á kjörfundi þurfa a.m.k. 20% félagsmanna á atkvæðaskrá að taka þátt í atkvæðagreiðslu.

Í tilkynningunni segir jafnframt að athygli hafi vakið að fjölmargir aðrir annmarkar hafi verið á atkvæðagreiðslu Eflingar og hvorki fylgt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur né reglum sem miðstjórn ASÍ hefur sett um fyrirkomulag atkvæðagreiðslna hjá aðildarfélögum.