Seðlabankinn tilkynnti í morgun um 0,5 prósenta lækkun stýrivaxta bankans. Samtök atvinnulífsins segja í frétt á vefsíðu samtakanna að þetta sé jákvætt skref sem muni koma fyrirtækjum og heimilum til góða. Lækkunin sé í takti við hagstæða verðbólguþróun á árinu, en verðbólgan hafi farið hjaðnandi frá gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði fyrr á árinu.

Samtökin benda á að verðbólguvæntingar stjórnenda hafi farið minnkandi og hafi ekki verið minni síðastliðin fjögur ár. Að jafnaði vænti stjórnendur 2,5% verðbólgu næstu tólf mánuði sem sé í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabankans.

„Nýjar hagtölur sýna að hagvöxtur á árinu verði mun minni en spáð hefur verið og horfur því óvissari en áður. Seðlabankinn bendir á að nú séu líkur á minni verðbólgu en þegar vextir voru lækkaðir í nóvember og útlit fyrir að verðbólgan verði undir markmiði bankans fram yfir mitt næsta ár.

Samtök atvinnulífsins hafa ítrekað bent á að vextir verði að lækka á Íslandi. Heimili og fyrirtæki líði fyrir allt of háa vexti miðað við nágrannalönd okkar. Í yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankans segir að haldist verðbólga undir markmiði og verði launahækkanir í komandi kjarasamningum í samræmi við verðbólgumarkmið gætu skapast forsendur fyrir frekari lækkun vaxta. Miklar launahækkanir og vöxtur eftirspurnar geti hins vegar grafið undan nýfengnum verðstöðugleika og stuðlað að hækkun vaxta á ný,“ segir að lokum.