Samkeppniseftirlitið hefur sent frá sér tilkynningu vegna fréttar um viðskipti með eignarhluti í Ölgerð Egils Skallagrímssonar í Fréttablaðinu í dag um að aðilar viðskiptanna hafi beðið eftir samþykki Samkeppniseftirlitsins að óþörfu.

Segir Samkeppniseftirlitið að aðilar málsins hafi reynt að knýja fram afstöðu stofnunarinnar til viðskiptanna með því að senda samrunatilkynningu til hennar í tvígang.

„Í fyrra skiptið taldi eftirlitið ekki forsendur til þess að taka málið til rannsóknar þar sem aðilar viðskiptanna voru sjálfir þeirrar skoðunar að ekki væri um samruna að ræða og gögn málsins gáfu ekki aðra niðurstöðu til kynna. Lá sú afstaða eftirlitins fyrir í lok október,“ segir í frétt Samkeppniseftirlitsins.

„Í kjölfar frekari samskipta setti eftirlitið fram nánari leiðbeiningu um til hvaða atriða þyrfti að líta við mat á því hvort til sameiginlegra yfirráða hefði stofnast. Málsaðilum var svo tilkynnt um að málinu væri lokið af hálfu Samkeppniseftirlitsins í byrjun desember.

Í kjölfarið var eftirlitinu þó aftur tilkynnt um viðskiptin þrátt fyrir að  umgjörð eignarhaldsins hefði verið breytt þannig að enn ólíklegra væri að til yfirráða stofnaðist.

Breytingar á yfirráðum eru forsenda þess að um tilkynningarskyldan samruna sé að ræða. Engu að síður sendu aðilar nýja samrunatilkynningu í því skyni að knýja á um afstöðu Samkeppniseftirlitsins. Niðurstaðan var sú að ekki væri um samruna að ræða.“

Kaupendur meti viðskiptin sjálfir

Í fréttinni segir að málið sýni mikilvægi þess að aðilar viðskipta taki á undirbúningsstigi afstöðu til þess hvort viðskiptin leiði til breytinga á yfirráðum, en þar hafi ekki einungis form eða stærð eignarhluta þýðingu, heldur geti undirliggjandi óformleg samstaða kaupendanna einnig skipt máli.

„Af þessari ástæðu eru engir betur til þess fallnir en kaupendurnir og lögmenn þeirra að meta hvort um ný yfirráð sé að ræða, og þar af leiðandi hvort viðskiptin feli í sér tilkynningarskyldan samruna.

Sökum þessa er í samkeppnisrétti lagt til grundvallar að aðilar viðkomandi viðskipta beri ábyrgð á því að meta hvort þau feli í sér samruna sem tilkynna ber til Samkeppniseftirlitsins,“ segir í fréttinni.

„Að öðrum kosti er hætta á að framkvæmd viðskiptanna dragist og tíma kaupenda, seljenda og eftirlitsaðila sé eytt að óþörfu.“