„Hópur um örugg matvæli" stendur nú fyrir 18 milljóna króna auglýsingaherferð gegn innflutningi kjöts. Nokkrir af aðstandendum hópsins eru stórtækir kjötinnflytjendur. Hér er um að ræða fyrirtækin Sláturfélag Suðurlands, Reykjagarð, Síld og fisk (Ali), Matfugl og Kjarnafæði. Félag atvinnurekenda greinir frá þessu á vef sínum .

Í frétt FA segir að samkvæmt upplýsingum, sem Félag atvinnurekenda tók saman í janúar , hafi þessi fyrirtæki fengið, auk Stjörnugríss, í sinn hlut rúmlega 41% af tollfrjálsum innflutningskvóta fyrir kjötvörur, sem var úthlutað fyrir fyrri helming ársins 2019 samkvæmt tollasamningi Íslands og Evrópusambandsins. FA hafi þá bent á að þessir innlendu bændur og afurðastöðvar hefðu augljóslega ekki áhyggjur af heilsufarsáhrifum innflutnings á kjöti.

Engu breyti hvort kjöt sé ferskt eða frosið

Þá segir jafnframt að á vef hópsins, oruggurmatur.is , sé varað við innflutningi á kjöti. Þar segi meðal annars: „Það getur vel verið að aukinn innflutningur á erlendu kjöti hafi jákvæð efnahagsleg áhrif til skamms tíma litið. En hvað með lýðheilsuáhrif? Er það þess virði að fórna öryggi og heilsu landa okkar í framtíðinni?"

FA segir að hluta til sé málflutningi Hóps um örugg matvæli beint gegn frumvarpi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, sem kveður á um afnám frystiskyldu á innfluttum kjötvörum. Í greinargerð með frumvarpinu komi fram það mat yfirdýralæknis og sóttvarnalæknis að frysting hafi lítil áhrif á aðrar bakteríur en kamfýlóbakter, enda lifi þær af frystingu. Með vísan til þess breyti engu hvort kjöt sé ferskt eða frosið með tilliti til sýklalyfjaónæmis og sé því ekki talið að afnám frystiskyldu muni eitt og sér hafa áhrif á sýklalyfjaónæmi hér á landi. Af þessu megi jafnframt draga þá ályktun að áhættan af innflutningi á frosnu kjöti, eins og fyrirtækin stunda nú, sé nokkurn veginn sú sama hvað sýklalyfjaónæmi varðar og á ófrosnu kjöti.

„Tvískinnungur af þessu tagi alls ekki trúverðugur“

„Samkvæmt málflutningi þessara fyrirtækja á oruggurmatur.is er innflutt kjöt stórhættulegt og ber í sér bakteríur sem ógna lýðheilsu á Íslandi. Í verki eru þau hins vegar stórtækir kjötinnflytjendur og sýna þannig að þau hafa engar áhyggjur af því að innflutningur ógni heilsu fólks," er haft eftir Ólafi Stephensen, framkvæmdastjóra FA. „Forsvarsmenn þesssara fyrirtækja verða að fara að gera upp hug sinn. Tvískinnungur af þessu tagi er alls ekki trúverðugur. Það er ekki allt í lagi, þótt það sé hægt."