Fyrirtækið Saltverk Reykjaness hefur verið úrskurðað gjaldþrota en það framleiddi salt árin 2011 til 2012 með því að hita sjó með jarðvarma. Fyrirtækið seldi eignir sínar í kjölfar deilna milli hluthafa að því er kemur fram á mbl.is .
Félag sem ber nafnið Saltverk ehf. er þó enn starfandi og hefur selt vörur og framleitt undir vörumerki Saltverks frá árinu 2013.
Stofnendur félagsins reistu saltverksmiðju á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp árið 2011. Á árunum 1770 til 1794 var framleitt salt með svipaðri aðferð á sama stað.