Forsvarsmenn Sparisjóðsins í Keflavík, Sparisjóðs Vestfirðinga og Sparisjóðs Húnaþings og Stranda hafa gert með sér samkomulag um að leggja til við stjórnir sjóðanna að þeir verði sameinaðir, að því er fram kemur í sameiginlegri tilkynningu sparisjóðanna.

"Efnahagur sparisjóðanna þriggja er traustur og þeir hafa eflst til muna hin síðustu misseri. Áætlanir gera ráð fyrir því að stofnfé verði aukið í tengslum við sameininguna og verði að því búnu u.þ.b. 5,7 milljarðar króna. Eigið fé sameinaðs sjóðs mun nema u.þ.b. 21 milljarði króna og ljóst að þeir munu í sameiningu geta sinnt enn stærri verkefnum og eflt þjónustu við viðskiptavini sína.

Stjórnendur sjóðanna telja að ýmis tækifæri felist í sameiningu sparisjóða; útlána- og fjárfestingargeta mun aukast til muna og margs konar hagræði verður af nánara samstarfi. Allt verður þetta til heilla fyrir viðskiptavini sjóðanna, starfsmenn þeirra og stofnfjáreigendur, og svarar jafnframt kalli tímans um alhliða þjónustu fjármálafyrirtækja.

Nú þegar er unnið að samrunaáætlun og nánari útfærslu. Endanleg ákvörðun um samruna er svo í höndum fundar stofnfjáreigenda sem gert er ráð fyrir að haldinn verði fyrir lok nóvember n.k. Samruni sparisjóða, eins og annarra fjármálastofnana er háður samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlits," segir í tilkynningunni.