Sagafilm ehf. hefur keypt allt hlutafé í GunHil ehf. og frá og með 1. janúar 2017 munu félögin starfa undir sameinuðu eignarhaldi Sagafilm ehf. Hluthafar í GunHil ehf. verða frá þeim tíma hluthafar í Sagafilm. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Guðný Guðjónsdóttir, sem hefur starfað í 10 ár hjá Sagafilm, fyrst sem fjármálastjóri og síðustu ár sem forstjóri, hefur ákveðið að söðla um og hyggur á ferðalög ásamt fjölskyldu sinni um óákveðinn tíma.

„Hilmar Sigurðsson, sem hefur mikla reynslu af rekstri í skapandi greinum á Íslandi, Ítalíu og í Danmörku, tekur við sem forstjóri sameinaðs félags og mun jafnfram stýra GunHil, sem verður rekið sem sjálfstætt dótturfyrirtæki Sagafilm. Við sameininguna tekur Árni Geir Pálsson, stjórnarformaður GunHil sæti í stjórn Sagafilm,“ segir í fréttatilkynningunni.

Eflir íslenska kvikmyndagerð

Markmiðið með sameiningu fyrirtækjanna tveggja er að efla eigin framleiðsla og sókn Sagafilm á erlenda markaði. „Sagafilm hefur verið leiðandi á íslenskum kvikmynda-, sjónvarps- og auglýsingamarkaði í áratugi og undanfarin misseri hefur efni úr smiðju Sagafilm notið aukinna vinsælda erlendis. Spennuþáttaröðin Réttur 3 (CASE) er nú aðgengileg yfir 50 milljón áskrifenda Netflix víða um heim, auk þess sem fjöldi evrópskra sjónvarpsstöðva hefur tryggt sér sýningarrétt á henni. GunHil vinnur að framleiðslu „Lói – þú flýgur aldrei einn“, sem er tölvugerð teiknimynd fyrir alþjóðamarkað - nú þegar seld til sýninga í kvikmyndahúsum í yfir 30 löndum og verður jólamynd í kvikmyndahúsum á Íslandi 2017. Verkefni félaganna falla vel saman og munu starfsmenn Sagafilm ehf.  vera um 40 talsins frá og með 1. janúar 2017,“ er tekið fram í tilkynningunni.

Haft er eftir Ragnari Agnarssyni, stjórnarformanni Sagafilm, að sameining fyrirtækjanna tveggja muni tvímælalaust styrkja framleiðslu vandaðs, íslensks efnis. Hann segir jafnframt að það sé tilhlökkunarefni að fá Hilmar og hans fólk til liðs við Sagafilm. Ragnar þakkar jafnframt Guðnýju fyrir og þakkar henni fyrir frábært samstarf.

Hilmar Sigurðsson, sem tekur nú við sem forstjóri fyrirtækisins, segir að það sé ánægjulegt að koma saman og leiða störft og öflugt framleiðslufyrirtæki í kvikmyndagreininni á Íslandi.