Sjálfstæðisflokkurinn mældist með stuðning 21,3% landsmanna og er stærsti stjórnmálaflokkurinn á Alþingi samkvæmt nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 7.-12. september.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkaði um tæplega eitt prósentustig frá síðustu mælingu sem lauk 10. ágúst. Samfylkingin mældist með 19,8% fylgi sem er aukning um rúm þrjú prósentustig frá síðustu mælingu. Píratar mældust nú með 13,2% fylgi sem er nær óbreytt frá síðustu mælingu.

Stuðningur við ríkisstjórnina fer minnkandi en 41,1% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 41,7% í síðustu mælingu.

  • Fylgi Vinstri grænna mældist nú 11,1% og mældist 8,8% í síðustu könnun.
  • Fylgi Miðflokksins mældist nú 10,8% og mældist 10,3% í síðustu könnun.
  • Fylgi Framsóknarflokks mældist nú 8,1% og mældist 8,9% í síðustu könnun.
  • Fylgi Viðreisnar mældist nú 7,9% og mældist 8,7% í síðustu könnun.
  • Fylgi Flokks fólksins mældist nú 5,3% og mældist 7,8% í síðustu könnun.
  • Fylgi annarra flokka mældist 2,5% samanlagt.