Litlar breytingar eru á fylgi flokkanna ef kosið væri til alþingis samkvæmt nýjasta þjóðarpúlsi Gallup. Samfylkingin mælist næst stærst eða með 18%, en um fjórðungur mun kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Næst á eftir þeim tveim koma Vinstri græn með 14% og Píratar með 11%.
Loks eru tæplega 10% sem styðja Framsóknarflokkinn, næstum 8% sem styðja Miðflokkinn og Viðreisn, og ríflega 4% Flokk fólksins. Af rúmlega 2% sem myndu kjósa aðra flokka en þá sem nú sitja á alþingi nefnir um helmingurinn Bjarta framtíð.
Tæplega 10% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og rösklega 7% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.
Frá því fyrir mánuði síðan hefur stuðningur við ríkisstjórnina minnkað um 2 prósentustig en núna mælist hann 58%.
Hér má sjá fylgi flokkanna:
- Sjálfstæðisflokkurinn - 25,3%, sem er sama og hann fékk í síðustu kosningum
- Samfylkingin - 17,7%, fékk 12,1% í kosningunum
- Vinstri græn - 14,1%, fékk 16,9% í kosningunum
- Píratar - 11,0%, fékk 9,2%
- Framsóknarflokkurinn - 9,6%, fékk 10,7%
- Miðflokkurinn - 7,9%, fékk 10,9%
- Viðreisn - 7,7%, fékk 6,7%
- Flokkur fólksins - 4,2%, fékk 6,9%
- Aðrir flokkar/framboð - 2,3%