Isavia hefur samið við Securitas um þjónustu við fatlaða og hreyfihamlaða flugfarþega sem þurfa á sérstakri aðstoð að halda til þess að komast leiðar sinnar um Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Þjónusta Securitas uppfyllir íslenska og evrópskar reglugerðir um réttindi fatlaðra og hreyfihamlaðra flugfarþega, að því er fram kemur í tilkynningu frá Isavia. Aðstoðin nær ekki einungis til fatlaðra og hreyfihamlaðra heldur einnig til þeirra sem vegna aldurs eða veikinda eiga erfitt með að ferðast hjálparlaust. Í tilkynningunni segir einnig að útboðið sé eitt stærsta þjónustuútboð Isavia á síðustu árum og áætlað virði samningsins yfir 30 milljónir á ári.