Í gær var undirritaður upplýsingaskiptasamningur Íslands við Sameinuðu arabísku furstadæmin, þetta kemur fram í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu. Samningurinn er liður í sameiginlegt átak Norðurlandanna sem hófst árið 2006. Með þessu hafa verið undirritaðir alls 44 upplýsingaskiptasamningar við ríki sem OECD hefur skilgreint sem lágskattaríki.

Samningurinn við Sameinuðu arabísku furstadæmin, eins og hinir 43 samningarnir, tekur til upplýsingaskipta samkvæmt beiðni sem þýðir að skattayfirvöld þurfa að hafa yfir að ráða lágmarksupplýsingum um skattaðilann svo að unnt sé að sinna beiðni um upplýsingar.

Samningum víkkar því net upplýsingaskiptasamninga, bæði fyrir Ísland og hin Norðurlöndin. Í tilkynningunni segir jafnframt að fyrir daga þeirra hafi íslensk stjórnvöld haft  fá úrræði til að sannreyna upplýsingar um eignarhald á fyrirtækjum í eigu Íslendinga í lágskattaríkjum eða um tekjur eigenda sem af eignarhaldinu hlaust.