Samkaup og Basko hafa komist að samkomulagi um að Samkaup kaupi valdar verslanir í eigu Basko að því er fram kemur í tilkynningu. Ekki kemur fram um hvaða verslanir ræðir en Basko rekur verslanir undir merkjum 10-11, Iceland, Háskólabúðarinnar og Inspired By Iceland.

Samkomulagið er enn háð fyrirvörum, m.a. um áreiðanleikakönnun og samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Samkaup rekur um fimmtíu verslanir á 33 stöðum um allt land. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu vörumerki Samkaupa eru Nettó, Kjörbúðin og Krambúð. Starfsmenn félagsins eru um 1.000 í rúmlega 500 stöðugildum.

Samningsaðilar hyggjast ekki tjá sig frekar um viðskiptin þar til fyrirvörum hefur verið aflétt að því er fram kemur í tilkynningunni.

Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka var ráðgjafi Samkaupa.