Efling og samflotsfélög í kjaraviðræðum hafa fallist á grundvallaratriði kjarasamnings við Samtök atvinnulífsins, en eins og Viðskiptablaðið sagði frá í gærkvöldi voru verkföll sem hefjast áttu í dag aflýst.

Sömuleiðs var, uppúr miðnætti í gærkvöldi gengið frá yfirlýsingu milli Samtaka atvinnulífsins annars vegar og félaga verslunarmanna og félaga Starfsgreinasambandsins hins vegar um meginlínur kjarasamninga sem ætlað er að standa til 1. nóvember 2022.

Samkomulagið er gert með fyrirvara um aðkomu stjórnvalda og samþykki samninganefnda aðila en það verður nánar útfært af samningsaðilum á morgun og kynnt í kjölfarið.

Aðkoma stjórnvalda mikilvægur fyrirvari

Meðlimir samninganefndar Eflingar - stéttarfélags funduðu ásamt forystu félagsins í gærkvöld í húsakynnum Ríkissáttasemjara þar sem rætt var ítarlega um inntak viðræðna síðustu daga og þann grundvöll sem þar hefur loks myndast.

Þessi grundvöllur varð til í gegnum stífar viðræður Eflingar og samflotsfélaganna VR, LÍV, Framsýnar, VLFA og VLFG við Samtök atvinnulífsins síðustu daga.

Að höfðu samráði við félagsmenn ákvað formaður Eflingar að aflýsa verkfallsaðgerðum og vinna að lokagerð samnings. Mun sú vinna hefjast strax í dag, auk þess sem leitað verður eftir viðbrögðum frá stjórnvöldum en aðkoma þeirra er mikilvægur fyrirvari um undirritun samnings þegar þar að kemur.

Ekki fullnaðarsigur heldur vopnahléslína

„Niðurstaðan í þessum viðræðum er ekki fullnaðarsigur heldur vopnahléslína milli stéttar verkafólks og stéttar auðmagnseigenda. Baráttan milli þeirra heldur áfram. Ég er sátt við að við höfum fengið fram grundvöll til þess að loka samningi eftir langar og strangar kjaraviðræður,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir.

„Félagsmenn okkar hafa auðvitað síðasta orðið um hvort þeir samþykkja samning í atkvæðagreiðslu eða ekki. En ég held að með þessum samningsgrundvelli hafi náðst að koma til móts við kröfur okkar félagsmanna um lífskjarabót.“ Viðar Þorsteinsson framkvæmdastjóri Eflingar sagði stálinn stinn hafa mæst á lokametrum samningagerðarinnar.

„Hér skipti miklu máli pressan sem verkfallsaðgerðir okkar sköpuðu, samtakamáttur félagsmanna og sá mikli meðbyr sem við höfum fundið í samfélaginu við kröfur Eflingar og bandalagsfélaga okkar,“ sagði Viðar. Efling undirbýr nú áætlun um kynningu komandi samnings meðal félagsmanna, á félagsfundum og með kynningarefni. Trúnaður hvílir enn sem komið er um inntak viðræðna.