Samherji mun höfða ógildingarmál á hendur Seðlabankanum vegna stjórnvaldssektar upp á 15 milljónir króna sem Seðlabankinn ákvað að leggja á fyrirtækið í kjörfar þess að Samherji hafnaði sáttaboði bankans fyrr í sumar.

Þetta kemur fram í bréfi til starfsmanna Samherja þar sem farið er yfir sjónarmið fyrirtækisins í deilunni við Seðlabankann. Þar segir m.a.:

„Til að breiða yfir þessi afglöp og fleiri sendi Seðlabankinn Samherja bréf um miðjan júlí þar sem reynt var að þvinga fram sátt gegn greiðslu fjársektar uppá 8,5 milljónir króna. Þrátt fyrir að það hefði verið þægilegast að taka þessu sáttarboði og afskrifa loksins málið, sem hófst með stærstu húsleit Íslandssögunnar og hefur tekið mikinn tíma og orku, kom það ekki til greina. Enda þótt hér hefði verið velt við hverjum steini í rekstrinum hefur Seðlabankinn oftar en einu sinni verið gerður afturreka með ásakanir sínar, útreikninga og aðferðir. Því var það aldrei valkostur af okkar hálfu að taka boði á röngum forsendum, bara til að losna.

Nú sem áður finnst okkur skipta máli að sýna fram á að við hjá Samherja gerðum ekki neitt rangt, heldur vorum við beitt ósanngjarnri valdbeitingu nokkurra vanhæfra embættismanna Seðlabankans.“

Í bréfinu er einnig farið yfir meintar rangfærslur Seðlabankans, þar segir m.a:

„Eftir að hafa haldið í barnaskap okkar að málinu væri lokið kom annað á daginn. Um mitt sumar barst Samherja hf. bréf frá Seðlabankanum. Þá kom í ljós að tímann frá því málinu var vísað frá sérstökum saksóknara fyrir ári síðan höfðu þeir notað til að finna upp á enn einni ástæðu til að breiða yfir eigin mistök og rangfærslur, sem hafa verið margar og alvarlegar. Rétt er að geta hér um nokkur þeirra:“

Í lok bréfsins kemur fram að: „Við munum á næstu vikum og mánuðum gera opinberlega grein fyrir einstökum þáttum þessa máls. Nú sem áður finnst okkur skipta máli að sýna fram á að við hjá Samherja gerðum ekki neitt rangt, heldur vorum við beitt ósanngjarnri valdbeitingu nokkurra vanhæfra embættismanna Seðlabankans.

Samherji mun höfða ógildingarmál á hendur Seðlabankanum vegna stjórnvaldssektarinnar því henni munum við aldrei una.“

Um þetta mál fjalla Fiskifréttir einnig. Sjá nánar á vef Samherja.