Þann 18. maí 2018 var undirritaður kaupsamningur á milli Regins hf. og FAST-1 samlagshlutafélags. um kaup Regins á öllu hlutafé dótturfélaga FAST-1 slhf., HTO ehf. og FAST-2 ehf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reginn. Kaupsamningurinn var gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Samkeppniseftirlitið hefur nú birt niðurstöðu sína, en samkvæmt henni telur Samkeppniseftirlitið að kaup Regins hf. á ofangreindum félögum feli í sér samruna í skilningi 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. Samkeppniseftirlitið telur ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna samrunans.

Unnið er að endanlegri fjármögnun kaupanna og er gert ráð fyrir að henni ljúki í september næstkomandi.