Fjarskipti hf. (Vodafone) og Samkeppniseftirlitið undirrita sátt vegna samruna Vodafone og 365 miðla segir í fréttatilkynningu um samþykkt eftirlitsins á kaupum fjarskiptafélagsins á ljósvakamiðlum 365 miðla. Samkvæmt henni setur eftirlitið skilyrði fyrir samrunanum.

Þann 14. mars 2017 undirrituðu Fjarskipti hf. og 365 miðlar hf. samning um kaup Fjarskipta á öllum eignum og rekstri 365 miðla, að undanskildum eignum er varða útgáfu Fréttablaðsins og tímaritsins Glamour. Samningurinn var gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Í kjölfar undirritunar kaupsamnings var Samkeppniseftirlitinu send formlega samrunatilkynning og hefur málsmeðferð Samkeppniseftirlitsins staðið síðan.

Lauk með sátt við Samkeppniseftirlitið

Nú hefur málinu verið lokið með sátt milli Fjarskipta og Samkeppniseftirlitsins. Í sáttinni felst að Samkeppniseftirlitið samþykkir samrunann með skilyrðum. Samhliða hefur Samkeppniseftirlitið gert sátt við 365 miðla að því er varðar eignatengsl á fjölmiðlamarkaði sem af samrunanum leiðir.

Af sáttinni leiðir að Fjarskiptum er nú heimilt að taka við fjölmiðlarekstri 365 miðla (að undanskildu Fréttablaðinu og Glamour). Nú taka við aðrir hefðbundir fyrirvarar í kaupsamningi af þessum toga. Aðilar munu nýta næstu vikur til að leggja lokahönd á viðskiptin með það að markmiði að allir fyrirvarar verði uppfylltir og afhending geti farið fram þann 1. desember 2017.

Fjarskipti hafa lýst því yfir við Samkeppniseftirlitið að rekstur þess á starfandi fjölmiðlum, þ.á.m. fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar, sé fyrirtækinu mikilvægur fyrir framtíðar starfsemi félagsins. Þannig verði einnig stuðlað að fjölræði og fjölbreytni á fjölmiðlamarkaði.

Að öðru leyti er markmið með sáttinni og meginefni skilyrðanna eftirfarandi:

  1. Að neytendur njóti eðlilegrar hlutdeildar í þeim ábata sem samrunanum er ætlað að ná fram, m.a. í verði á þjónustu.
  2. Að bæta kjör og aðgang að dreifikerfum Fjarskipta fyrir sjónvarp og með því móti efla samkeppnisstöðu smærri innlendra sjónvarpsstöðva sem verða í samkeppni við ljósvakamiðla Fjarskipta. Er þessu einnig ætlað að efla fjölræði og fjölbreytni.
  3. Að auðvelda minni fjarskiptafyrirtækjum, sem uppfylla tiltekin skilyrði, að veita Fjarskiptum og Símanum hf. samkeppnislegt aðhald og vinna þar með gegn þeirri takmörkun sem að mati Samkeppniseftirlitsins fellst í brotthvarfi 365 miðla hf. sem sjálfstæðs keppinautar. Til að ná þessu markmiði skal þessum fjarskiptafyrirtækjum bjóðast að endurselja mikilvægar sjónvarpsrásir Fjarskipta, auk þess að fá aðgang að IP TV kerfi félagsins. Með þessu er minni fjarskiptafyrirtækjum gefinn kostur á að bjóða upp á vöndla af fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu og með því auka samkeppni með árangursríkum hætti.
  4. Við undirritun sáttarinnar liggja fyrir samningar við Hringdu ehf. um endursölu á mikilvægum sjónvarpsrásum og endursöluaðgang að IP TV kerfi Fjarskipta, en slík samningsgerð var mikilvæg forsenda fyrir samþykki samrunans af hálfu Samkeppniseftirlitins.

Þá er í sáttinni mælt fyrir um með hvaða hætti starfsemi nýs Ljósvakasviðs, auk smásölu og heildsölu Fjarskipta skuli háttað og lúta þau skilyrði m.a. að því að tryggja trúnað, jafnræði og hlutlægni.

Stefán Sigurðsson , forstjóri Vodafone segir samþykki Samkeppniseftirlitsins á kaupum Vodafone á stórum hluta fjölmiðla- og fjarskiptastarfsemi 365 með skilyrðum vera stóran áfanga í löngu ferli.

„Nú munum við fara yfir forsendur og fyrirvara afhendingar með seljanda með það fyrir augum að kaupin geti gengið í gegn með yfirfærslu eigna þann 1. desember nk. Þar sem um kaup á samkeppnisaðila er að ræða hefur okkur gefist takmarkað tækifæri til undirbúnings sameiningar með starfsmönnum 365, en það ferli getur nú hafist af krafti,“ segir Stefán.

„Velta sameinaðs félags mun nema um 22 milljörðum króna og skila um 5 milljörðum króna í EBITDA hagnað þegar samlegðaráhrif eru að fullu komin fram eftir 12-18 mánuði. Með viðskiptunum verður til leiðandi fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtæki á Íslandi, sem mun veita yfir 500 manns atvinnu og bjóða upp á fjölbreytt vöruframboð og enn betri þjónustu til sinna viðskiptavina. Samþykki Samkeppnieftirlitsins eru því mikilvægt skref í þá átt að ljúka viðskiptunum á farsælan hátt og því að okkar mati góðar fréttir fyrir viðskiptavini og landsmenn alla.”