Stofnfjáreigendur SPK samþykktu á fundi sínum í gær samrunaáætlun SPK og Byrs Sparisjóðs. Niðurstaða fundarins er þó háð samþykki Fjármálaeftirlitsins. Í frétt á heimasíðu SPK kemur fram að með samrunanum verður til stærri og öflugri eining sem er vel í stakk búin að takast á við ný og krefjandi framtíðarverkefni í síharðnandi samkeppnisumhverfi.

Með sameiningunni aukast möguleikar til framþróunar og vaxtar og hefur sameinaður sparisjóður mun sterkari stöðu til sóknar en hvor sjóður fyrir sig hafði áður. Heildareignir sameinaðs sjóðs verða um 130 milljarðar króna.

BYR rekur í dag sex útibú í Reykjavík, Garðabæ og Hafnarfirði og Sparisjóður Kópavogs rekur þrjú útibúi í Kópavogi.