Framboðslisti Sósíalistaflokksins í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík hefur verið ákveðinn. Hann samanstendur af baráttufólki fyrir hagsmunum láglaunafólks, leigjenda, öryrkja, lífeyrisþega, fátækra og annar hópa sem haldið hefur verið frá völdum segir í fréttatilkynningu frá flokknum.

Helsta erindi framboðsins er krafa um að hin verr settu fái komist til valda, að borgin byggi húsnæði þar til húsnæðiskreppan er leyst og að Reykjavíkurborg greiði fólki mannsæmandi laun segir í tilkynningunni.

Listarnir voru kynntir í gær, 1. maí, á frídegi verkamanna, en sama dag héldu ýmisr forsvarsmenn verkalýðsfélaga ræður. Eins og Viðskiptablaðið greindi frá benti Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ meðal annars á í sinni ræðu að byltingarsinnar hafi leitt kjarabaráttuna út í ógöngur í sögunni, sem geti skert lífskjör.

Listi Sósíalistaflokks Íslands í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík er þessi:

  • 1. Sanna Magdalena Mörtudóttir, námsmaður og málsvari fátækra barna
  • 2. Daníel Örn Arnarsson, bílstjóri og stjórnarmaður í Eflingu stéttarfélagi
  • 3. Magdalena Kwiatkowska, afgreiðslukona og stjórnarmaður í Eflingu stéttarfélagi
  • 4. Hlynur Már Vilhjálmsson, í starfsendurhæfingu og stofnandi Fósturheimilisbarna
  • 5. Ásta Þórdís Guðjónsdóttir, samhæfingarstjóri Pepp á Íslandi, samtaka fólks í fátækt
  • 6. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar stéttarfélags
  • 7. Reinhold Richter, aðaltrúnaðarmaður í ISAL
  • 8. Anna Maria Wojtynska, háskólanemi og lausamanneskja
  • 9. Laufey Líndal Ólafsdóttir námsmaður
  • 10. Natalie Gunnarsdóttir, diskótekari
  • 11. Styrmir Guðlaugsson öryrki
  • 12. Kristbjörg Eva Andersen Ramos námsmaður
  • 13. Erna Hlín Einarsdóttir þjónustufulltrúi
  • 14. Hólmsteinn A. Brekkan, blikkari og framkvæmdastjóri Samtaka leigjenda
  • 15. Elsa Björk Harðardóttir, öryrki
  • 16. Jón Kristinn Cortez, tónlistarkennari og eftirlaunamaður
  • 17. Ella Esther Routley, dagmamma
  • 18. Pálína Sjöfn Þórarinsdóttir verkakona
  • 19. Þórður Alli Aðalbjörnsson, í starfsendurhæfingu
  • 20. Ósk Dagsdóttir kennari
  • 21. Herianty Novita Seiler öryrki
  • 22. Reynir Jónasson, hljóðfæraleikari og eftirlaunamaður
  • 23. Friðrik Boði Ólafsson, tölvufræðingur og stjórnarmaður í VR
  • 24. Guðrún Elísabet Bentsdóttir, öryrki
  • 25. Ynda Gestsson lausamanneskja
  • 26. Kurt Alan Van Meter, upplýsingafræðingur
  • 27. Anna Eðvarðsdóttir næturvörður
  • 28. Luciano Dutra þýðandi
  • 29. Leifur A. Benediktsson verslunarmaður
  • 30. Ævar Þór Magnússon lyftaramaður
  • 31. Ragnheiður Ásta Pétursdóttir eftirlaunakona
  • 32. Kremena Polimenova Demireva, öryrki og skúringakona
  • 33. Kristján Hafsteinsson strætóbílstjóri
  • 34. Auður Traustadóttir, sjúkraliði og öryrki
  • 35. Elísabet María Ástvaldsdóttir leikskólakennari
  • 36. María Gunnlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur og öryrki
  • 37. Sigrún Unnsteinsdóttir athafnakona
  • 38. Bogi Reynisson safnvörður
  • 39. Eggert Lárusson  eftirlaunamaður
  • 40. Vilhelm G. Kristinsson, eftirlaunamaður og leiðsögumaður
  • 41. Hildur Oddsdóttir öryrki
  • 42. Sigríður Kolbrún Guðnadóttir sjúkraliði
  • 43. Magnús Bjarni Skaftason verkamaður
  • 44. Guðmundur Erlendsson, eftirlaunamaður og kokkur
  • 45. Benjamín Julian Plaggenborg stuðningsfulltrúi
  • 46. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur

Framboðslisti Sósíalistaflokks Íslands í bæjarstjórnarkosningunum í Kópavogi er þessi:

  • 1. Arnþór Sigurðsson, kjötiðnaðarmaður, forritari og stjórnarmaður í VR
  • 2. María Pétursdóttir, myndlistarmaður, kennari og öryrki
  • 3. Rúnar Einarsson afgreiðslumaður
  • 4. Hildigunnur Þórsdóttir Saari námsmaður
  • 5. Alexey Matveev skólaliði
  • 6. Ásdís Helga Jóhannesdóttir íslenskukennari
  • 7. Eiríkur Aðalsteinsson afgreiðslumaður
  • 8. Edda Jóhannsdóttir, blaðamaður og öryrki
  • 9. Lucyna Dybka, vinnur við aðhlynningu á Landakotsspítala
  • 10. Elísabet Viðarsdóttir stuðningsfulltrúi
  • 11. Ágúst V. Jóhannesson matreiðslumaður
  • 12. Sólveig María Þorláksdóttir skrifstofumaður
  • 13. Sigrún Júlíusdóttir, félagsráðgjafi og eftirlaunakona
  • 14. Ali Conteh aðstoðarkokkur
  • 15. Baldvin Björgvinsson, framhaldsskólakennari í rafiðnum
  • 16. Helga Guðmundsdóttir ritari
  • 17. Kolbrún Valvesdóttir verkakona
  • 18. Ída Valsdóttir afgreiðslukona
  • 19. Þorvar Hafsteinsson hönnuður
  • 20. Össur Ingi Jónsson forritari
  • 21. Jón Baldursson, smiður og eftirlaunamaður
  • 22. Örn G. Ellingsen heimspekingur