Samkeppniseftirlitið hefur nú til rannsóknar samkeppnisleg áhrif samruna vegna kaupa Samkaupa hf. á eignum 14 verslana af Basko verslunum ehf. Viðskiptablaðið hafði áður greint frá kaupunum.

Þar sem um er að ræða samruna á mörkuðum sem varða almenning miklu hefur Samkeppniseftirlitið ákveðið að óska opinberlega eftir sjónarmiðum almennings og fyrirtækja um áhrif samrunans á samkeppni. Til að gefa almenningi og öðrum hagaðilum kost á að kynna sér málið hefur Samkeppniseftirlitið birt samrunatilkynningu málsins á heimasíðu sinni.

Rannsókn málsins hófst eftir að fullnægjandi samrunatilkynning barst Samkeppniseftirlitinu þann 25. júní slíðastliðinn.

Í málinu ber Samkeppniseftirlitinu að rannsaka hvort viðkomandi samruni hindri virka samkeppni með því að markaðsráðandi staða eins eða fleiri fyrirtækja verði til eða slík staða styrkist, eða að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti.

Við rannsóknina hefur Samkeppniseftirlitið meðal annars til skoðunar hver staðbundin áhrif samrunans kunna að vera á svæðum þar sem keppinautum mun fækka í kjölfar samrunans. Hefur Samkeppniseftirlitið sérstaklega til skoðunar hvort þeir keppinautar sem eftir standa á tilteknum svæðum muni veita samrunaaðilum nægilegt samkeppnislegt aðhald í kjölfar samrunans. Í þessu samhengi horfir Samkeppniseftirlitið meðal annars. til dagvörumarkaðar á Akureyri og í Reykjanesbæ. Einnig horfir Samkeppniseftirlitið til mögulegra áhrifa á tilteknum svæðum á höfuðborgarsvæðinu.

Með tilkynningu þessari er öllum sem áhuga hafa gefið tækifæri til þess að koma sjónarmiðum á framfæri vegna samrunans.