Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, skýtur föstum skotum á hóp þingmanna í Facebook-færslu í dag, þar sem hann gagnrýnir vinnubrögð þeirra og óvirðingu við Alþingi.

„Áberandi er hópur þingmanna sem telur sig sérstakt baráttufólk fyrir bættum vinnubrögðum og aukinni virðingu alþingis. Flest eiga þau nú samt sameiginlegt að hafa varla unnið ærlegt handtak um ævina og finnst dugnaður ofmetinn, ef ekki úreltur. Í þeirri baráttu nota þau ræðustól þingsins, klædd eins og niðursetningar, og saka pólitíska andstæðinga og embættismenn ýmist um lygi, óheiðarleika, spillingu og glæpi. Á sama tíma getur það ekki einu sinni sagt satt um eigin menntun. Undir þetta taka svo helstu sóðamiðlar landsins, sem trúa sjálfir að þeir séu hlutlausir og heiðarlegir.

Þau kenna sig við frjálslyndi en eru mestu búrókratar sem þekkjast á byggðu bóli. Þau treysta sér ekki til að heilsa með handabandi því að engar skráðar reglur eru til um hvora hendina skuli nota. Þau taka þingið og framkvæmdavaldið í gíslingu með endalausu málþófi og gagnslausum fyrirspurnum. Þau hika ekki við að setja sig í dómarasæti í málum sem þau hafa hvorki kynnt sér né hafa vit á. Dómarnir eru gjarnan mjög þungir og ekki kunna þau að biðjast afsökunar reynast þeir rangir. Þetta fólk skeytir hvorki um skömm né heiður.“

Ummæli Brynjars beinast eflaust til þingmanna Pírata, en hann hefur ekki farið leynt með óbeit sína á Pírötum í gegnum tíðina. Björn Leví Gunnarsson er sá þingmaður Pírata sem hefur sakað fjármálaráðherra um lygar, farið á sokkaleistunum í pontu Alþingis og verið duglegastur þingmanna með fyrirspurnir á þingi. Þá er Smári McCarthy sá þingmaður Pírata sem sakaður var um að fara rangt með stærðfræðimenntun sína á samskiptamiðlinum LinkedIn.

„Já, ég fór öfugu megin úr rúminu í morgun,“ segir Brynjar í lok færslunnar. Í athugasemdum við færslunni er Brynjar meðal annars hvattur til þess að fara oftar öfugu megin fram úr rúminu.