Makríllinn hefur hreinsað upp allt æti í kringum Vestmannaeyjar, segir Eyþór Þórðarson, skipstjóri á Dala-Rafni VE. Hann segir að makríllinn sé plága og ábyrgur m.a. fyrir pysjudauða. Hann vill beita stórvirkari aðgerðum til að veiða makríl næst landi.
„Vandamálið er, held ég, makríllinn, sem étur allt sem á vegi hans verður. Hann hefur haldið sig hérna í kringum Eyjarnar og ryksugað upp allt æti. Við höfum séð mikið af dauðum lundapysjum í sjónum. Það var mikið æti hérna í kringum Eyjar en svo mætir makríllinn á svæðið og hreinsar það upp á hálfum mánuði,“ segir Eyþór.
Sjá nánar í Fiskifréttum.