Miðað við það sem liggur fyrir á þessu stigi málsins er ekkert sem bendir til annars en að ásættanleg niðurstaða náist um raflagnir til álvers í Helguvík og því fráleitt að tala um að forsendur fyrir álverinu hafi breyst. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Landsneti en hún er send út vegna frétta að undanförnu varðandi útfærslu á flutningi raforku á Suðurnesjum.

Í yfirlýsingunni vill Landsnet árétta að málið er í eðlilegum farvegi. Það er til kynningar og umfjöllunar hjá sveitarfélögunum eins og lög gera ráð fyrir.


Lögum samkvæmt ber Landsneti að byggja upp flutningskerfi raforku á sem hagkvæmastan hátt og hafa allar tillögur fyrirtækisins á Reykjanesi miðast við það segir í yfirlýsingunni. "Við hönnun flutningskerfisins er af hálfu Landsnets lögð áhersla á að taka tillit til framtíðarþróunar, eins og raunhæft þykir á hverjum tíma. Þær framkvæmdir sem nú eru til umfjöllunar snúast annars vegar um nauðsynlega endurnýjun á núverandi kerfi, án tillits til frekari framtíðaruppbyggingar, og hins vegar um uppbyggingu vegna virkjanaáforma í tengslum við fyrirhugaða iðnaðarstarfsemi á svæðinu, svo sem byggingu álvers, hugsanleg netþjónabú og aðra atvinnuuppbyggingu.

Landsnet vinnur eftir þeirri meginstefnu að raflínur séu almennt lagðir í lofti og jarðstrengir einvörðungu notaðir á styttri vegalengdum í byggð og þegar um lægri," segir í yfirlýsingu Landsnets.