Bláa Lónið Heilsuvörur ehf. seldi fyrir tæpar 1,7 milljónir evra árið 2015. Þetta kemur fram í nýjasta ársreikningi félagsins. Sala ársins 2014 nam 1,13 milljónum evra. Hráefnavinnsla Bláa Lónsins er vistuð innan félagsins.

Fyrirtækið skilaði þó 118 þúsund evra tapi, samanborið við 33 þúsund evra hagnaði árið 2014.

Eignir félagsins eru samtals metnar á 2,3 milljónir evra, á meðan eigið féð er orðið neikvætt um tæpar 30 þúsund evrur. Skuldirnar eru alls metnar á um 2,3 milljónir og hafa aukist umtalsvert á milli ára.

Handbært fé í árslok nemur 32 þúsund evrum. Fyrirtækið er í fullri eigu Blue Lagoon International ehf.