Verslunin Spilavinir hagnaðist um 4 milljónir króna á síðasta ári samkvæmt ársreikningi félagsins. Jókst hagnaður lítillega á milli ára. Tekjur félagsins námu 84 milljónum og drógust saman um 2 milljónir milli ára. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 6,5 milljónum og jókst um milljón milli ára.

Eignir félagsins námu 30 milljónum króna í lok árs og drógust saman um 5 milljónir en handbært fé var 16 milljónir samanborið við 21 milljón í lok árs 2016. Skuldir félagsins námu 26 milljónum í árslok og var eiginfjárhlutfall því 11%.