Að minnsta kosti 25% af eignarhlutum í Arion banka verða í boði í frumútboði bankans sem hefst á næstu vikum. Auk þess mun Kaupþing hafa rétt á að selja stærri hlut ef eftirspurnin í útboðinu fer yfir ákveðin mörk, svokallaður grænskór .
Eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað ítarlega um hefur stefnt að því lengi að Arion banki fari á markað, en samkvæmt tilkynningu bankans frá í morgun er talað um að skráningin fari fram á fyrri hluta þessa árs.
Það ætti að þýða að skráningin fari í síðasta lagi fram í lok júní. Jafnframt kemur fram að skráning bréfanna verði í kauphöll Nasdaq á Íslandi og Nasdaq í Stokkhólmi, en þar verður hún í formi svokallaðra Depositary Receipts í Svíþjóð.
Það er í raun ígildi hlutabréfa, sem tryggð eru af sænsku fjármálafyrirtæki, þeim fylgir atkvæðaréttur og annað slíkt, en gætu undir ákveðnum kringumstæðum verið með minni seljanleika.
Eigendur skuldbinda sig til að selja ekki meira í 180 daga, með undantekningum
Eigendur Arion banka hyggjast skuldbinda sig til að selja ekki fleiri bréf en þau sem verða í boði í frumútboðinu í 180 daga eftir það, en þó eru undantekningar á því. Munu Attestor Capital og Goldman Sachs International hafa rétt á að selja hluta af sínum bréfum.
Gildir það um þann eignarhluta sem er umfram 10,44 prósentustig af 12,44% eignarhlut Attestor, það er 2 prósentustig af eignarhlutum í bankanum. Sama gildir um það sem er umfram 2,57 prósentustig af eignarhlut Goldman Sachs fjárfestingarbankans, en hann á í heildina 3,37% í Arion banka. Það þýðir að um er að ræða 0,8% af bréfum í félaginu.
Skipting eignarhluta bankans er nú sem hér segir:
- 55,57% er í eigu Kaupþings (sem er að hluta í eigu annarra eigenda Arion banka).
- 12,44% er í eigu Attestor Capital
- 9,99% er í eigu Taconic Capital
- 6,58% er í eigu Och-Ziff Capital
- 9,50% er í eigu Arion banka sjálfs
- 3,37% er í eigu Goldman Sachs
Leiðarar, pistlar og skoðanadálkar um Arion banka:
- 29. apríl 2018 - Ein dýrasta starfsþjálfunin
- 29. mars 2018 - Hversu söluvænir eru bankarnir?
Fleiri fréttir um málefni Arion banka:
- 12. maí 2018 - Bankar í tilvistarkreppu?
- 9. maí 2018 - Starfsmenn fá allt að milljón í kaupauka
- 9. maí 2018 - Ekki söluvænt uppgjör
- 2. maí 2018 - Kaupþing selji fyrst um 30% í Arion
- 2. maí 2018 - Hagnaður Arion dregst saman um 42%
- 18. apríl 2018 - 23 milljarða kröfur í United Silicon
- 14. apríl 2018 - Endurvekja einkennisbúninga
- 16. mars 2018 - Arion framselur atkvæðisrétt í VÍS
- 15. mars 2018 - Engin arðgreiðsla úr Arion
- 14. mars 2018 - Herdís Fjeldsted í stjórn Arion
- 11. mars 2018 - Vilja banna greiðslu Valitor í arð
- 10. mars 2018 - Útboð Arion haldi niðri hlutabréfaverði
- 10. mars 2018 - Áhyggjur af arðsemi Arion
- 8. mars 2018 - Lokakaflinn að hefjast
- 8. mars 2018 - Arion banki lokar útibúum
- 26. febrúar 2018 - Ríkið fær samtals 31 milljarð
- 21. febrúar 2018 - Eign Taconic í Kaupþingi þrefaldast
- 15. febrúar 2018 - Vilja hlut ríkisins á 23,4 milljarða
- 15. febrúar 2018 - Arion kaupir 9,5% í sjálfum sér
- 14. febrúar 2018 - Arion hagnaðist um 14,4 milljarða
- 14. febrúar 2018 - Goldman Sachs bætir við sig í Arion
- 13. febrúar 2018 - Kaupþing selur sjóðum 5% í Arion banka
- 12. febrúar 2018 - Staðfesta tillögu um arðgreiðslu
- 12. febrúar 2018 - Ætla ekki að kaupa í Arion
- 7. febrúar 2018 - Gildi vilji ekki kaupa í Arion
- 6. febrúar 2018 - Arion greiði milljarða í arð fyrir sölu
- 31. janúar 2018 - Fengju hlutinn á 23 milljarða
- 25. janúar 2018 - Vilja kaupa hlut ríkisins í Arion
- 16. janúar 2018 - Kaupþing býður lífeyrissjóðum Arion á ný