Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, undirrituðu tvo samninga sem miða að því að styðja við nýsköpun og sprotafyrirtæki. Þetta kemur fram í frétt á vef Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

Samningarnir eiga rætur sínar að rekja til aðgerðaráætlunnar Frumkvæmi og framfarir, sem má finna hér. Áætlunin byggir á 22 aðgerðum sem miða að því að bæta starfsumhverfi frumkvöðla, sprotafyrirtækja og nýsköpunarstarfi á Íslandi.

„Samningarnir eru annars vegar vegna nýsköpunarátaks í starfandi fyrirtækjum þar sem ráðist verður í sérstakt átak  meðal starfandi fyrirtækja sem byggir á fræðslu og markvissri greiningu á tækifærum til nýsköpunar og þróunar.

Hins vegar er um að ræða samning um stuðning og þjálfun við alþjóðlega sókn framúrskarandi sprotafyrirtækja í vexti. Verkefnið verður unnið í samstarfi við norræna samstarfsaðila þar sem framúrskarandi fyrirtækjum verður boðin þátttaka í svokölluðum hraðalsverkefnum erlendis,“ segir í fréttatilkynningunni.