Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra stýrði í dag kynningu á nokkrum hátæknifyrirtækjum á fundi með sendinefnd frá Qatar sem hér hefur verið í heimsókn síðustu daga. Fór kynningin fram í húsakynnum Bláa lónsins.

Fyrirtækin sem um ræðir eru Nýorka, Icelandic Hydrogen, Marorka, Carbon Recycling International og Fjölblendir. Auk þess kynnti Hitaveita Suðurnesja nýjustu tæknilausnir sínar og skýrt var frá þróunarstarfi Bláa lónsins.   Fyrir sendinefndinni er Nassir Khalil Al Jaidah, forstjóri Qatar Petroleum International. Auk hans eru með í för fulltrúar fjárfestingarstofu Qatar og Qatar- stofnunarinnar sem hefur forystu á sviði tækni, vísinda og mennta. Einnig Khalid Rashid Al-Hamoudi Al Mansouri, sendiherra Qatar á Íslandi sem hefur aðsetur í Lundúnum.