Fólk í atvinnuleit sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins munu fá auk hefðbundinnar desemberuppbótar sérstaka uppbót fyrir hvert barn sem er á þeirra framfæri yngri en 18 ára.

Óskert desemberuppbót nemur 60.616 krónum, en fyrir hvert barn fæst nú til viðbótar 4% af þeirri uppbót, eða rúmar 2.400 krónur, en sú upphæð skerðist ekki.

„Rétt á fullri desemberuppbót eiga þeir atvinnuleitendur sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins, hafa verið skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í samtals tíu mánuði eða lengur á árinu 2016 og hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember," segir í fréttatilkynningu velferðarráðuneytisins.

„Greiðsla desemberuppbótar til þeirra sem eiga ekki fullan bótarétt reiknast í hlutfalli við rétt þeirra til atvinnuleysisbóta á árinu og fjölda mánuða sem viðkomandi hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur.“