Von er á Víkingi AK til Vopnafjarðar um miðjan dag á morgun með tæplega 2.600 tonna kolmunnaafla. Þetta er fyrsta veiðiferð skipsins á árinu á kolmunnamiðin vestur af Írlandi en þar er nú töluverður fjöldi íslenskra, færeyskra og rússneskra skipa að veiðum á alþjóðlegu hafsvæði.

Frá þessu segir á heimasíðu HB Granda og rætt við Albert Sveinsson skipstjóra á Víkingi.

„Við fórum frá Reykjavík 11. mars sl. og byrjuðum veiðar þann 14. mars. Þetta er löng sigling og mig minnir að það hafi verið 660 sjómílur frá Reykjavík á miðin,“ segir Albert, en að hans sögn byrjaði veiðin mjög vel.

„Við fengum um 1.100 tonn fyrsta sólarhringinn en eftir það tregaðist aflinn verulega.“ Albert segir að þegar aflinn minnkaði þá hafi kolmunninn virst ganga austur inn í írsku lögsöguna.

„Ég ákvað því að fara norðar en þar hafði verið ágæt veiði. Hún var þó að dala. Í næstu holum fengum við 150 og 180 tonn og þegar við hættum veiðum þá hífðum við 30 tonn eftir 13 tíma hol,“ segir Albert en hann segir skipstjórnarmenn á alþjóðlega hafsvæðinu vera nokkuð sammála um að stefnan á kolmunnanum hafi meira verið austlæg frekar en að hann hafi verið á göngu norður í áttina að færeysku lögsögunni.

„Þegar við fórum af miðunum voru menn farnir að leita að kolmunna sunnar og vonandi ber sú leit árangur,“ segir Albert en hann segir kolmunnann, sem fékkst í túrnum, vera stóran og fínasta hráefni.