Sigmundur Davið Gunnlaugsson forsætisráðherra segir að ekki sé við öðru að búast en að slitastjórnir gömlu bankanna muni andmæla og höfða mál gegn ríkinu vegna skattheimtu.

Þá segir forsætisráðherra að erlendir aðilar ættu ekki að vera síður tilbúnir til að lána Íslendingum fjármagn þó svo að ríkissjóður auki skattheimtu sína á þrotabú gömlu bankanna.