Sigríður Indriðadóttir hefur tekið við sem framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Íslandspósts af Andrési Magnússyni sem lét nýverið af störfum eftir áratuga starf hjá Íslandspósti og þar áður hjá Pósti og síma.

Sigríður hefur starfað sem mannauðsstjóri um margra ára skeið, fyrst hjá Mosfellsbæ og síðar hjá Mannviti. Þá hefur hún starfað við mannauðsráðgjöf hjá Reykjavíkurborg og grunnskólakennslu á Akranesi. Einnig hefur Sigríður starfað við þjálfun í mannlegum samskiptum hjá Dale Carnegie og nú síðast við stjórnendaþjálfun hjá Strategic Leadership.

Sigríður er með B.Ed gráðu frá Kennaraháskóla Íslands og M.SSc gráðu í mannauðs- og menntunarfræðum frá Háskólanum í Lundi, auk þess sem hún útskrifast úr markþjálfunarnámi frá Háskólanum í Reykjavík í vor.

Stórt og rótgróið fyrirtæki með marga starfsmenn

Sigríður Indriðadóttir segist hlakka til að takast á við ný verkefni og kynnast fólkinu í fyrirtækinu að því er segir í fréttatilkynningu. „Íslandspóstur er stórt og rótgróið fyrirtæki með marga starfsmenn,“ segir Sigríður sem segir það því vera mikið verkefni að taka við þessu starf. „Hef ég afar góða tilfinningu fyrir því að koma til starfa á þessum fjölbreytta og áhugaverða vinnustað.“

Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts segir menntun og reynslu Sigríðar koma sér vel í starfinu. „Það er okkur mikil ánægja að fá reynslumikinn og áhugasaman starfskraft til liðs við okkar öfluga starfsmannahóp og hlökkum við til ánægjulegs og árangursíks samstarfs.“