Sigríður Þorgeirsdóttir hefur verið ráðin í starf ráðgjafa hjá Attentus - mannauði og ráðgjöf.

Hún starfaði áður hjá Logos lögmannsþjónustu á árunum 2002 til 2014, fyrst sem skrifstofu- og starfsmannastjóri og síðar sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs. Þá situr hún í stjórn Gámaþjónustunnar og Kvosar og er einnig varamaður í stjórn Sparisjóðs Norðfjarðar.

Sigríður hefur lokið lagaprófi frá HÍ, MBA námi frá West Virginia University, AMP frá IESE Business School og stjórnendamarkþjálfun frá Opna háskólanum í Reykjavík.