Sigtryggur Magnason er nýr aðstoðarmaður Sigurðar Inga Jóhannssonar samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Sigtryggur hefur starfað við stefnumótun og hugmyndavinnu hjá Hvíta húsinu og þar áður sem „Creative Director“ hjá Íslensku auglýsingastofunni. Hann á að baki feril í blaðamennsku sem ritstjóri Dægurmálaútvarps Rásar 2, umsjónarmaður Helgarblaðs DV, ritstjóri Sirkuss Reykjavík og fastur pistlahöfundur hjá Morgunblaðinu.

Þá var hann aðstoðarmaður mennta- og menningarmálaráðherra frá 2009-2010. Sigtryggur hefur einnig fengist við ritstörf og hafa leikverk hans verið sett upp hér á landi og í Bandaríkjunum og hefur eitt verka hans verið gefið út í Þýskalandi.

Sigtryggur kemur í stað Ágústs Bjarna Garðarssonar og mun starfa við hlið Ingveldar Sæmundsdóttur. Ágúst Bjarni var nýverið kjörinn bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Hafnarfirði.