Þegar litið er á súlurnar að ofan má það undur heita, hversu skjótt snjallsímar hafa skotið rótum í hinum þróuðu hagkerfum Vesturlanda og raunar flestum svæðum öðrum.

Enn eru ekki 10 ár liðin frá því að iPhone kom fyrst á markað, en eins og sjá má er drjúgur hluti mannkyns kominn með fyrirferðarlitla tölvu í vasann, með myndavél, stað- setningarbúnaði og margs konar nemum og búnaði, að fjarskiptahlutanum ógleymdum.

Vissulega eiga mörg Afríkuríki nokkuð í land enn og Indland ekki síður, þó þar sé aukning að verða meiri. Þar kann líka mestu að muna um og áhrifin að reynast afdrifaríkari, bæði fyrir hvern og einn, sem samfélagið í heild.