Sigurbjörg Leifsdóttir hefur verið ráðin til að leiða áframhaldandi uppbyggingu og þróun fasteignasviðs Eignaumsjónar hf., en félagið hefur sérhæft sig í rekstri fjöleignahúsa, húsfélaga og rekstrarfélaga hátt í tvo áratugi, ásamt því að bjóða upp á fjölbreytta þjónustu við leigufélög varðandi rekstrar- og leiguumsjón að því er segir í fréttatilkynningu.

Sigurbjörg lauk viðskiptafræðiprófi, Cand Oceon, af fjármálasviði Háskóla íslands árið 1995. Hún kemur til Eignaumsjónar frá Lýsingu hf. þar sem hún starfaði í 18 ár, m.a. sem rekstrarstjóri, framkvæmdastjóri eignaumsýslu og innheimtu og forstöðumaður eignaumsýslu.

Fasteignasvið Eignaumsjónar er eitt þriggja meginstarfssviða félagsins og verður Sigurbjörg ábyrg fyrir resktri og umsjón fasteignaþjónustu félagsins, sem í vaxandi mæli annast rekstur atvinnuhúsnæðis í þágu viðskiptavina félagsins, að hluta eða öllu leyti, auk þess sem sviðið fer með framkvæmdastjórn fyrir ýmis rekstrarfélög sem nýta sér þessa þjónustu Eignaumsjónar.

Um Eignaumsjón

Eignaumsjón tók til starfa árið 2001 og er brautryðjandi á Íslandi í heildarþjónustu við rekstur atvinnu- íbúðarhúsnæðis. Félagið hefur sérhæft sig í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög um fasteignir og býður upp á heildarlausnir í rekstri fjöleignarhúsa, bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæðis, með það að markmiði að gera rekstur fasteigna markvissari og ódýrari, auka upplýsingaflæði og auðvelda störf eigenda og hússtjórna.

Skrifstofa Eignaumsjónar er á Suðurlandsbraut 30 í Reykjavík þar sem öflugur hópur starfsfólks þjónustar með faglegum hætti ört fjölgandi viðskiptavinahóp félagsins og er Sigurbjörg boðin velkomin í hópinn.