Sigurbjörn Jón Gunnarsson formaður stjórnar Landsbréfa hf. fer í tímabundið leyfi frá störfum frá 1. september.

Heiður Agnes Björnsdóttir varastjórnarformaður tekur því sæti í aðalstjórn félagsins. Hefur stjórnin jafnframt ákveðið að Kristinn Ingi Lárusson gegni formennsku í stjórninni á meðan Sigurbjörn er í leyfi.

Sigurbjörn er framkvæmdastjóri Lyfju hf. en það fyrirtæki fer nú í opið söluferli. Ekki er útilokað að Landsbréf hf. taki þátt í söluferlinu og óskar Sigurbjörn eftir því að fara í leyfi til 31. desember 2016, á meðan ferlið stendur yfir.