Sigurður Árnason héraðsdómslögmaður hefur gengið til liðs við Atlas lögmenn sem einn af meðeigendum stofunnar.

Sigurður hefur áður starfað sem lögmaður hjá Arion banka hf. og á lögmannsstofunum Arctic lögmenn og Pacta lögmenn.

Megináhersla Atlas lögmanna hefur verið á þjónustu við lögaðila á sviðum viðskipta og fjármála. Atlas lögmenn eru til hús í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.