MP banki hefur fest kaup á ALFA verðbréfum, samstarfsaðila Credit Suisse á Íslandi, og verður félagið starfrækt sem dótturfélag MP banka. Jafnframt hefur verið gengið frá því að Sigurður Atli Jónsson, forstjóri ALFA verðbréfa, taki við sem forstjóri MP banka af Gunnari Karli Guðmundssyni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá MP banka. Brynjólfur J. Baldursson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs ALFA tekur við starfi Sigurðar.

Úr fréttatilkynningu:

ALFA er sjö ára gamalt fjármálaráðgjafarfyrirtæki, stofnað árið 2004, og með starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki frá 2010. Þjónusta félagsins hefur byggt á nánu samstarfi við einn stærsta banka heims, svissneska alþjóðabankann Credit Suisse, og lýtur fyrst og fremst að alþjóðlegum fjárfestingum. Meðal viðskiptavina ALFA eru flestir stærstu fagfjárfestar landsins; lífeyrissjóðir, fjárfestingafélög og aðrir fjárfestar og er félagið nú með um 15 milljarða króna í eignastýringu fyrir viðskiptavini sína. Jafnframt hefur ALFA unnið ýmis ráðgjafarverkefni fyrir fyrirtæki og opinbera aðila, bæði hér á landi og erlendis. Kaupverðið er trúnaðarmál og kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Fjármálaeftirlitsins (FME). Samhliða kaupunum hefur orðið að samkomulagi að Sigurður Atli Jónsson, forstjóri ALFA verðbréfa, taki við starfi forstjóra MP banka af Gunnari Karli Guðmundssyni. Við starfi Sigurðar Atla hjá ALFA tekur Brynjólfur J. Baldursson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs ALFA.

MP banki í sóknarhug

„MP banki stendur á tímamótum eftir aðkomu breiðs hóps innlendra og erlendra hluthafa fyrir tveimur mánuðum og breytinga á stjórnunarteymi bankans. Þær breytingar sem verða með kaupunum á ALFA verðbréfum eru liður í þeim áformum stjórnar bankans að styrkja enn frekar stöðu hans og sérstöðu á íslenskum fjármálamarkaði. Um leið og við fögnum þessum áfanga vil ég þakka Gunnari Karli Guðmundssyni, fráfarandi forstjóra, fyrir mikið og óeigingjarnt starf fyrir bankann og afar gott samstarf og bjóða jafnframt Sigurð Atla Jónsson velkominn til starfa," segir Þorsteinn Pálsson, stjórnarformaður MP banka.

„Það er öflugur hópur viðskiptavina sem nýtir sér þjónustu ALFA verðbréfa og starfsemi félagsins fellur mjög vel að rekstri MP banka. Bankinn stendur nú á þremur meginstoðum og er í sóknarhug. Hann er viðskiptabanki, fjárfestingabanki og býður nú einnig stærstu fjárfestum landsins, erlendum fjárfestum og öðrum viðskiptavinum upp á eignastýringu og sérbankaþjónustu," segir Sigurður Atli Jónsson, nýr forstjóri MP banka. „Ég hlakka til að takast á við þau fjölmörgu krefjandi verkefni sem eru framundan hjá eina óháða og sjálfstæða banka landsins."