Sig­urður Magnús Sig­urðsson sem hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra flugrekstr­ar­sviðs WOW air, hefur látið af störfum hjá flugfélaginu. Sigurður var ráðinn til WOW undir lok sumars 2015 og hafði fyrir það gegnt stöðu flugrekstrarstjóra hjá flugfélaginu Atlanta. Túristi greinir frá þessu , en samkvæmt heimildum Túrista mun Sigurður vera á leið til Atlanta á nýjan leik.

Samkvæmt upplýsingum sem Túristi fékk frá WOW air þá mun Sigurður áfram sinna starfi sínu hjá félaginu þar til að eftirmaður hans verður fundinn. Gert er ráð fyrir að það muni taka nokkrar vikur að ráða í starfið en það mun vera auglýst á næstu dögum, innanlands sem og erlendis.