Þeir Sigurður Markús Grétarsson og Jóhann Líndal Jóhannsson hófu störf hjá HS Orku í mars mánuði síðastliðnum.

Sigurður er menntaður tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og starfar sem deildarstjóri upplýsingatækni HS Orku. Áður starfaði Sigurður sem deildarstjóri reikningagerðar hjá Vodafone.

Jóhann er löggiltur endurskoðandi með meistaragráðu í reikningshaldi og endurskoðun frá Háskólanum í Reykjavík.  Jóhann starfar sem sérfræðingur á fjármálasviði HS Orku með umsjón með íslenska djúpborunarverkefninu. Jóhann starfaði áður sem verkefnisstjóri á endurskoðunarsviði Deloitte.