Sigurður Orri Jónsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Skeljungs, mun láta af störfum hjá félaginu á næstu mánuðum samkvæmt fréttatilkynningu frá félaginu til Kauphallarinnar.

Sigurður hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra hjá Skeljungi frá árinu 2015,  Mun hann sinna störfum framkvæmdastjóra þar til eftirmaður hans hefur verið fundinn.