Sigurjón Magnús Egilsson mun, að öllu óbreyttu, láta af störfum hjá fjölmiðlafyrirtækinu Hringbraut eftir rúman mánuð. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu hans í dag. Tilkynnt var um ráðningu Sigurjóns sem ritsjóri allra miða Hringbrautar í apríl sl.
Í tilkynningunni segist hann hafa hætt sem ég sem ritstjóri allra miðla Hringbrautar fyrir nokkrum mánuðum og hef síðan verið ritstjóri Þjóðbrautar. Hafi hann sagt upp störfum 8. ágúst og því sé sex mánaða uppsagnafrestur senn að baki. Það er því ljóst að Sigurjón starfaði eins um rúma þrjá mánuði hjá fyrirtækinu áður en hann sagði upp störfum.
„Ekki er ég viss um hvað ég tek mér fyrir hendur að þeim tíma loknum. Ýmislegt kemur til greina,“ ritar Sigurjón jafnframt.